Alþjóðlega ráðstefnan IGEC25 er með áherslu á þróun grænna orkugjafa og notkun gervigreindar í orkumálum, til hagsbóta fyrir umhverfið, fólkið og fyrirtækin.

IGEC Ráðstefnan er haldin árlega, 2023 í Glasgow og 2024 í Ningbo í Kína, og dregur til sín flesta helstu alþjóðlega sérfræðinga og hagsmunaaðila á fagsviðinu þar á meðal fjölmarga virta vísindamenn frá alþjóðlega háskólasamfélaginu auk annara.

Með styrk frá Örvar, verkefni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, er í samráði Arctic Portal, Háskóla Ísland og Háskólans á Akureyri stuðlað að virkri þátttöku íslenskra háskólanemenda í ráðstefnunni. 15 íslenskum háskólanemum verður veitt tækifæri á virkri þátttöku í ráðstefnunni og til verkefnakynningar í vinnustofum ráðstefnunnar. Samhliða verður möguleiki á að framlagðar greinar (papers) fái alþjóðlega ritrýnda birtingu í erlendum fagtímaritum tengdum erlendu ráðstefnuhöldurunum. 

Opið er fyrir umsóknir um verkefnakynningar. Notast skal við formið HÉR. Frestur til að skila tillögum að verkefnalýsingum sem verði kynntar ítarlegar á IGEC ráðstefnunni í Hörpu 12-14 október er til 15 ágúst.

Þátttakendur verði valdir úr hópi innsendra verkefnalýsinga á hlutlausan hátt af valnefnd skipaðri af fulltrúum Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Ef ekki berast fullnægjandi umsóknir að mati valnefndar verður umsóknarfrestur mögulega framlengdur.

Fagmenn munu verða til taks til að veitta nemum ráðgjöf við frekari útfærslu verkefnakynninga þeirra.

Þátttökugjald á ráðstefnuna er styrkt að fullu fyrir þá nema sem valdir eru til að halda kynningar.

Nemar af landsbyggðinni eiga kost á ferðastyrk.